Mín staðsetning

Mín staðsetning segir þér hvar þú ert. Hún segir í hvaða átt þú snýrð eða ferðast, og síðan götuna eða heimilisfangið þar sem þú ert. Notaðu hana þegar þú stígur úr strætó, ferð út úr byggingu eða missir áttirnar.

Ef þú stendur kyrr skaltu fyrst beina efri brún símans í þá átt sem þú snýrð. Ef síminn er læstur, eða Soundscape er ekki á skjánum, skaltu líka halda símanum flötum.


This site uses Just the Docs, a documentation theme for Jekyll.